Sport

ARSENAL BIKARMEISTARI

Arsenal tryggði sér enska bikarmeistaratitilinn í knattspyrnu í dag eftir 5-4 sigur á Man Utd í vítaspyrnukeppni. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 0-0 eftir algera yfirburði Man Utd. Paul Scholes misnotaði einu vítaspyrnu Man Utd sem Jens Lehman markvörður varði en hann fór á kostum í markinu. Arsenal skoraði örugglega úr öllum sínum vítaspyrnum en þetta er í fyrsta sinn í sögu þessarar fornfrægu keppni sem úrslitaleikur fer í vítaspyrnukeppni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×