Sport

Viljandi gult hjá Beckham?

Real Madrid og Atletico Madrid gerðu markalaust jafntefli í fremur bragðdaufum nágrannaslag í spænsku úrvalsdeildinni. David Beckham krækti sér í gult spjald í leiknum og það viljandi að talið er því hann verður í leikbanni í lokaumferðinni og getur því farið með enska landsliðinu til Bandaríkjanna um næstu helgi. Real Betis sigraði Real Zaragoza 3-2. Barcelona tekur á móti Villareal klukkan 19 og verður leikurinn sýndur beint á Sýn 2 og endursýndur á Sýn síðar um kvöldið. Börsungar fá spænska meistaratitilinn afhentan í leikslok. Henrik Larsson verður í leikmannahópi liðsins í kvöld en hann meiddist illa fyrr á leiktíðinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×