Sport

Rangers skoskir meistarar

Glasgow Celtic missti af skoska meistaratitlinum í knattspyrnu á dramatískan hátt í dag og Glasgow Rangers hömpuðu titlinum þar sem tvö mörk á lokamínútunum réðu niðurstöðu skosku úrvalsdeildarinnar. Celtic þurfti að vinna Motherwell og voru 1-0 yfir þangað til á 88. mínútu þegar Motherwell jöfnuðu og skoruðu sigurmarkið á lokamínútunni, lokatölur 2-1. Á sama tíma unnu Rangers 0-1 útisigur á Hibernian og ljúka keppni efst með 93 stig en Celtic 92. Hibernian náði þó að tryggja sér UEFA Cup sæti þrátt fyrir tapið þar sem liðið hafnaði í 3. sæti með 61 stig, jafnmörg og Aberdeen sem missa af Evrópusætinu með lakari markatölu en munurinn var þó ekki nema 2 mörk.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×