Sport

Breiðablik vann aftur

Fjórir leikir voru í fyrstu deild karla í fótbolta í gær. Breiðablik lagði Völsung að velli á Húsavík 1-0 með marki Kristjáns Óla Sigurðssonar. Þá bar Víkingur Ólafsvík sigurorð af KS 1-0, Ejub Purisevic skoraði sigurmarkið. Þór og Víkingur Reykjavik skildu jöfn á Akureyri, 1-1. Jón Guðbrandsson skoraði fyrir Víking en Steinn Símonarson jafnaði metin úr vítaspyrnu undir lok leiksins. Fjölnir vann sigur á KA 2-0 en Pétur Georg Markan og Sigmundur Pétur Ástþórsson skoruðu mörkin. Breiðablik er á toppnum með sex stig, Víkingur Reykjavík, Þór og Víkingur Ólafsvík eru með fjögur. Annarri umferð lýkur í kvöld með viðureign HK og Hauka á Kópavogsvelli og hefst leikurinn klukkan 20.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×