Sport

Rush var hetja Shevchenko

Framherji AC Milan, Úkraínumaðurinn Andriy Shevchenko, hefur sagt frá því að ein af hetjum hans síðan hann var polli sé ein af goðsögnum Liverpool, Ian Rush. Þetta segir Shevchenko aðeins tveimur dögum fyrir úrslitlaleik Meistaradeildarinnar á milli AC Milan og Liverpool. ,,Rush var frábær framherji, enn sá albesti á sínum tíma og ég mun aldrei gleyma því er ég fékk að eiga skóparið hans er ég var á unglingamóti í Wales. Ég var um fjórtán ára og ég elskaði þessa skó." Hinn 28-ára gamli Shevchenko segist vera mikill aðdáandi enska boltans og þá sérstaklega Liverpool. ,,Ég var vanur að horfa á Liverpool spila sem smástrákur í sjónvarpinu og ég geri það ennþá. Ég horfi reglulega á leiki úr enska boltanum með liðsfélögum mínum í Milan. Við höfum allir mikinn áhuga á enska boltanum."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×