Sport

Silva vonast eftir nýjum samningi

Hinn brasilíski miðjumaður hjá Arsenal, Gilberto Silva, er vongóður um að fá nýjan samning hjá nýbökuðum bikarmeisturum Arsenal. Hinn 28-ára gamli Gilberto hefur leikið mjög vel síðari hluta tímabilsins eftir að hafa verið meira og minna meiddur fyrri hlutann. Gilberto á eitt ár eftir af samningi sínum og ætlar greinilega ekki að fylgja landa sínum Edu sem ætlar að yfirgefa Arsenal á frjálsri sölu í sumar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×