Sport

Valur yfir í leikhléi

Valsmenn eru yfir, 1-0, gegn Skagamönnum í síðasta leik annarrar umferðar Landsbankadeildarinnar í knattspyrnu. Það var Skagamaðurinn fyrrverandi, Garðar Gunnlaugsson, sem gerði eina mark hálfleiksins eftir frábæra sendingu Guðmundar Benediktssonar á áttundu mínútu. Skagamenn hafa verið sterkari aðilinn í leiknum og fékk Hjörtur Júlíus Hjartarson dauðafæri strax á fyrstu mínútu leiksins, en arfaslakt skot hans var beint á Kjartan Sturluson markvörð Vals.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×