Sport

Valur sigraði Skagann 2-0

Valsmenn eru með fullt hús stiga eftir 2-0 sigur á Skagamönnum í Landsbankadeildinni í knattspyrnu á Hlíðarenda í kvöld. Garðar Gunnlaugsson gerði fyrra mark Valsmanna með laglegu skoti eftir frábæra sendingu frá Guðmundi Benediktssyni sem átti fínan leik. Síðara markið kom úr mjög umdeildri vítaspyrnu sem Garðar Örn Hinriksson dæmdi, en í endursýningu sást að Reynir Leósson var á undan Garðari Gunnlaugssyni í boltann og því aldrei um vítaspyrnu að ræða. Valsmenn voru þó heilt yfir betra liðið og sigur þeirra fyllilega sanngjarn. Þeir hafa fullt hús stiga, ásamt KR og FH, eftir tvær umferðir en Skagamenn hafa þrjú stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×