Sport

Gunnar með þrennu gegn Landskrona

Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði þrennu fyrir Halmstad þegar liðið burstaði Landskrona 5-1 í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Mörk Gunnars komu öll á 18 mínútna kafla í síðari hálfleik. Þetta voru fyrstu mörk Gunnars á tímabilinu. Halmstad er í öðru sæti í deildinni með níu stig eftir fjóra leiki en Helsingsborgs er á toppnum með tíu stig. Pétur Hafliði Marteinsson lék allan tímann með Hammarby þegar liðið beið lægri hlut fyrir Elfsborg, 4-1, á útivelli. Djurgården lagði Assyriska að velli 3-1, Kári Árnason og Sölvi Geir Ottesen voru ekki með Djurgården.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×