Sport

Síðasti leikurinn með Liverpool?

Milan Baros, sóknarmaður Liverpool segir að úrslitaleikurinn í Meistaradeildinni gegn AC Milan annað kvöld geti orðið síðasti leikur hans fyrir félagið. Baros er ekki sáttur að fá ekki að leika meira með liðinu og mun skoða möguleika sína eftir leikinn. Mörg félög hafa borið víurnar í hann. Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, hló að fréttamönnum á blaðamannafundi í morgun þegar hann var spurður út í framtíð Baros og spurði hvort að þeir tryðu virkilega ölllu sem stæði í blöðunum á Englandi. Mikil spenna er fyrir úrslitaleikinn en stuðningsmenn liðanna streyma til Istanbúl. Carlo Ancelotti, þjálfari AC Milan, leggur áherslu á að skora snemma í leiknum. Það gæti reynst lykilatriði því það mundi raska leik Liverpool. Ancelotti lofaði einnig Milan-liði í toppformi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×