Sport

Nýja liðið heldur Sauber nafninu

NordicPhotos/GettyImages

Forráðamenn BMW hafa staðfest að nýja liðið þeirra í Formúlu 1, sem hefur keppni á næsta tímabili, muni halda nafni Sauber sem það hét áður en BMW ákvað að skaffa því vélar og heiti því BMW Sauber.

"Nafnið valdi sig sjálft," sagði Mario Theissen hjá BMW. "Það eru enn yfir 300 starfsmenn í hjá liðinu úr kjarna Sauber og þar sem við sköffum vélarnar, þótti okkur þetta nafn liggja beinast við," sagði hann og Peter Sauber sjálfur var ánægður þegar nafnið var tilkynnt.

"Það er gott að fá að halda nafninu áfram," sagði hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×