Innlent

Forsetafrúin hneig niður

Dorrit Moussaieff forsetafrú fékk aðsvif og hneig óvænt niður þegar hún heilsaði gestum við upphaf afhendingar Íslensku bókmenntaverðlaunanna á Bessastöðum í gær. Ekki er vitað hvað olli aðsvifinu en Örnólfur Thorsson forsetaritari sagði í viðtali við Fréttablaðið að Dorrit hefði dregið sig í hlé frá athöfninni og ekki tekið þátt í henni frekar.

Læknir var kallaður til Bessastaða í gærkvöld og eftir ítarlega skoðun var ákveðið að Dorrit gengist undir frekari læknisrannsókn í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×