Menning

Hýrna brár landans

KHH skrifar
Óvæntar uppákomur og endurkomur í Borgarleikhúsinu. Guðmundur Ólafsson fer á kostum í Tenórnum.
Óvæntar uppákomur og endurkomur í Borgarleikhúsinu. Guðmundur Ólafsson fer á kostum í Tenórnum.
Sumarið er lögformlega komið og með síhækkandi sól rennur upp hláturtíð í Borgarleikhúsinu. Til stendur að kæta geð leikhúsgesta með ýmsum hætti en í næstu viku hefst dagskráin með pompi og prakt með sérstakri opnunarhátíð. Í tilefni þessa koma meðal annars gestir frá Leikfélagi Akureyrar og sýna gamanleikinn Fullkomið brúðkaup, farsinn Viltu finna milljón? verður frumsýndur og helstu grínarar landsins munu troða upp á Stóra sviðinu.

Á opnunarhátíðinni verður opnuð skopmyndasýninga á verkum Hugleiks og Sigmund og mun Ilmur Stefánsdóttir myndlistarkona taka lagið með hljómsveit sinni og sýna ýmsa gjörninga/hluti sem fjöllistahópurinn CommonNonsense hefur búið til. Allur ágóði af opnunarhátíðinni rennur síðan til Umhyggju - félags til stuðnings langveikum börnum.

Leikarar úr Leikfélagi Reykjavíkur verða með óvænta uppá­komu sem tengist gömlum áramótaskaupum Sjónvarpsins og mun félagið einnig etja kappi við Leikfélag Akureyrar í keppninni um Bananabikarinn í leikhússportkeppni. Borgarleikhúsið mun líka standa fyrir sérstöku hláturnámskeiði í umsjón Ástu Valdimarsdóttur í tengslum við hátíðina. Tenórinn, hin vinsæla sýning Guðmundar Ólafssonar verður sýnd á ný á Litla sviðinu og leikritið Belgíska Kongó eftir Braga Ólafsson verður sýnt á Nýja sviðinu en sýningin er að ljúka sínu þriðja leikári fyrir fullu húsi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×