Sport

Valur lagði Stjörnuna

Valur vann Stjörnuna 23-20 í DHL-deild kvenna í handbolta í kvöld, þar sem Valsstúlkur voru yfir lengst af og unnu verðskuldaðan sigur. Berglind Hansdóttir átti stórleik í marki Vals og varði 20 skot, en Alla Gokorian skoraði 9 mörk. Jóna Margrét Ragnarsdóttir skoraði 10 mörk fyrir Stjörnuna.

 

FH sigraði Fram 27-22, Haukar unnu KA/Þór á útvielli 35-27, ÍBV lagði HK 31-26 og Grótta vann nauman sigur á Víkingi 19-28 á útivelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×