Sport

Grindavík lagði Njarðvík í framlengingu

Grindvíkingar lögðu granna sína úr Njarðvík í rafmögnuðum spennuleik í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld, þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en eftir framlengingu. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var jöfn 100-100, en Grindvíkingar höfðu betur á lokasprettinum og sigruðu 116-112.

KR-ingar lögðu Snæfell 63-59 á útivelli, Skallagrímur lagði Hött á útivelli 98-87, Hamar/Selfoss vann mikilvægan sigur á Þór 87-85, Keflvíkingar lögðu Fjölni 97-91 og ÍR vann Hauka 93-90.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×