Sport

Haukar lögðu Stjörnuna

Hanna Stefánsdóttir fór á kostum í liði Hauka og skoraði 12 mörk, þar af tvö úr vítaköstum
Hanna Stefánsdóttir fór á kostum í liði Hauka og skoraði 12 mörk, þar af tvö úr vítaköstum Mynd/Anton Brink
Haukar gerðu í dag góða ferð í Garðabæinn þar sem liðið skellti heimamönnum í Stjörnunni í DHL-deild kvenna í handbolta 29-26. Hanna G. Stefánsdóttir var markahæst í liði Hauka með 12 mörk og Ramune Pekarskite skoraði 7 mörk. Hjá Stjörnunni skoraði Rakel Dögg Bragadóttir 7 mörk og Sólveig Kjærnested 6 mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×