Sport

Halldór í tveggja leikja bann

Njarðvíkingar verða án hins kappfulla fyrirliða síns gegn ÍR annað kvöld
Njarðvíkingar verða án hins kappfulla fyrirliða síns gegn ÍR annað kvöld Mynd/Heiða
Halldór Karlsson, fyrirliði Njarðvíkinga, var í dag úrskurðaður í tveggja leikja bann fyrir óhæfileg mótmæli af aganefnd KKÍ og því er ljóst að Halldór mun missa af fyrstu tveimur leikjum Njarðvíkinga í úrslitakeppninni gegn ÍR. Halldór var rekinn af velli í leik Njarðvíkur og Keflavíkur í lokaumferð Iceland Express deildarinnar á dögunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×