Sport

Valsstúlkur á toppinn

Valur komst í dag á topp DHL-deildar kvenna í handbolta með 8 marka sigri á Fram, 21-29 í Framhúsinu. Valsstúlkur eru efstar ásamt Haukum með 26 stig en Haukar eiga leik til góðar gegn Víkingi á morgun. Eyjastúlkur sem eru í 3. sæti með 25 stig eiga leik til góða gegn FH en þeim leik hefur verið frestað til morguns.

Tveir aðrir leikir fóru fram í deildinni í dag. HK lagði KA/Þór, 31-24 og eru enn í 7. sæti með 11 stig. Að lokum vann Stjarnan fjögurra marka útisigur á Gróttu, 19-23 og eru Garðabæjarstúlkur nú komnar með 23 stig í fjórða sæti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×