Sport

Eyjastúlkur á toppinn

ÍBV
ÍBV

ÍBV tyllti sér á topp DHL-deildar kvenna í handbolta síðdegis með því að leggja FH að velli í Eyjum, 29-23. Eyjastúlkur eru með eins stig forystu á Val og Hauka en Hafnarfjarðarliðið getur endurheimt toppsætið um kvöldmatarleytið þegar Haukar mæta næst neðsta liðinu, Víkingi kl. 18.

Leikur ÍBV og FH átti upphaflega að fara fram í gær en var frestað vegna ófærðar í flugi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×