Sport

ÍBV í sterkri stöðu

Kvennalið ÍBV stendur með pálmann í höndunum fyrir lokaumferðina í DHL-deild kvenna í handknattleik eftir að liðið sigraði Gróttu 28-24 í Vestmannaeyjum í dag. Á sama tíma töpuðu Íslandsmeistarar Haukar fyrir Val 28-25 og því hefur ÍBV eins stigs forskot á Hauka og Val fyrir lokaumferðina.

Stjarnan burstaði Víking á útivelli 30-19, Fram vann KA/Þór 30-26 á útivelli og HK lagði FH í hörkuleik 34-33 í Kaplakrika.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×