Sport

Alonso reiknar með óvæntum úrslitum

Fernando Alonso
Fernando Alonso NordicPhotos/GettyImages

Heimsmeistarinn Fernando Alonso hjá Renault reiknar fastlega með því að óvænt nöfn gætu orðið á meðal efstu manna í Mónakókappakstrinum um helgina.

"Mónakó-brautin getur verið nokkuð óútreiknanleg og oftar en ekki eru óvænt nöfn á meðal þeirra efstu. Williams-liðið náði til að mynda öðru og þriðja sætinu í fyrra og ég held að verði nokkrir "minni spámenn" á meðal efstu manna um helgina. Annars er tímatakan auðvitað gríðarlega mikilvæg í þessum kappakstri og það verður mjög erfitt að ná góðum tíma við þessar aðstæður," sagði Alonso.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×