Heilsa

Stíll snýst ekki bara um tísku...“

MYND/AFP

„Ég hef alltaf gefið mig hundrað prósent í allt sem ég hef tekið mér fyrir hendur,“ sagði Mademoiselle Chanel, ein frægasta tískudrottning allra tíma. Gabrielle „Coco“ Chanel var einstaklega vel gefin kona. Hún var snillingur í samræðulist, framúrskarandi reiðkona og fær í stangveiði.

 

A model presents a creation by German designer Karl Lagerfeld for Chanel during the Spring/Summer 2007 ready-to-wear collections in Paris, 06 October 2006. AFP PHOTO/FRANCOIS GUILLOT chanel, tíska

Chanel varð fyrst kvenna til þess að stílfæra karlmannsföt og sníða þau fyrir hina praktísku, útivinnandi konu. Hún stalst oft í jakkaföt vina sinna sem hún breytti svo eftir eigin sniði. Einn besti félagi hennar, hertoginn breski af Westminster veitti henni innblástur í klassískar Chanel-flíkur eins og blazer-jakka úr tweed-efnum, víðar kápur með belti, klassískar peysur með skyrtukrögum undir og hnepptum ermum.

A model presents a creation by German designer Karl Lagerfeld for Chanel during the Autumn/Winter 2007/2008 ready-to-wear collection show in Paris, 02 March 2007. AFP PHOTO FRANCOIS GUILLOT chanel, tíska
Mademoiselle Chanel hafði einstakt dálæti á kamillu-blóminu sem hún notaði óspart í munstrum og skartgripum. Úr svítu sinni á Ritz-hótelinu í París horfði hún yfir hið fagra Place Vendôme torg, en sexhyrnt lag þess endurspeglast til dæmis í úrum og öðrum fylgihlutum frá Chanel. Hún boðaði þá nýbreytni að kona gæti gengið í sömu dragtinni að degi til og að kvöldlagi án þess að skipta um föt. Hið klassíska Chanel lógó var hannað árið 1921 og enn í dag er það afar nútímalegt.
A model presents a creation by German designer Karl Lagerfeld for Chanel during the Autumn/Winter 2007/2008 ready-to-wear collection show in Paris, 02 March 2007. AFP PHOTO FRANCOIS GUILLOT chanel, tíska
Frægasta ilmvatn í heimi er auðvitað Chanel no. 5: einstök blanda af blómailmi og er enn í dag eitt mest selda ilmvatnið. Chanel-taskan með frægu leður- og gullkeðjunni varð einnig til af praktískum ástæðum: áður fyrr þurftu konur alltaf að halda á veskjunum sínum en Mademoiselle fann upp þessa hugvitsamlegu en elegant lausn á að bera töskur á öxlinni.
A model presents a creation by German designer Karl Lagerfeld for Chanel during the Spring/Summer 2007 ready-to-wear collections in Paris, 06 October 2006. AFP PHOTO/FRANCOIS GUILLOT chanel, tíska
Coco Chanel dó árið 1971 en eins og hún hafði vonað skildi hún eftir sig klassískan stíl sem á eftir að lifa að eilífu. Árið 1982 tók þýski fatahönnuðurinn Karl Lagerfeld við yfirhönnun Chanel og tókst að halda í klassísk gildi Chanel en krydda þau ætíð með örlitlum útúrdúrum. Í sumar koma þunnir sjiffonkjólar yfir hvíta boli sterkt inn ásamt „hot pants“ stuttbuxum úr pallíettuefnum og silfruðum og gylltum málmáferðum.
A model presents a creation by German designer Karl Lagerfeld for Chanel during the Autumn/Winter 2007/2008 ready-to-wear collection show in Paris, 02 March 2007. AFP PHOTO FRANCOIS GUILLOT chanel, tíska
Fyrir vetrarlínuna 2007-2008 poppar Lagerfeld litapallettu Chanel upp með túrkisbláu, gylltu og rauðu og notast mikið við köflótt efni í skoskum stíl. Einfaldi svarti kjóllinn sem Chanel gerði frægan var framúrstefnulegur í ár, með beige-litum lakksaumum og skór voru rokkaðir og uppháir. 

 

A model presents a creation by German designer Karl Lagerfeld for Chanel during the Autumn/Winter 2007/2008 ready-to-wear collection show in Paris, 02 March 2007. AFP PHOTO FRANCOIS GUILLOT chanel, tíska

Fimm leiðir að Chanel-útlitinu:

1.Svartur beinn jakki, helst með bryddingum.

2. Hvítar skyrtur, einfaldar eða með blúndu, undir svartri peysu eða vesti

3. Litapallettan á helst að haldast við svart, hvítt og beige.

4. Notaðu svartar sokkabuxur við einfalda hvíta kjóla og notaðu svartar slaufur óspart.

5. Rauður varalitur og perlufesti fullkomnar hið klassíska Chanel-útlit.








×