Innlent

Óvíst hvenær aðvörunarskilti koma upp í Reynisfjöru

Nanna Hlín skrifar
Frá Reynisfjöru.
Frá Reynisfjöru.

Enn eru engin skilti komin í Reynisfjöru þar sem ferðamenn hafa oft verið hætt komin síðustu ár. Vinna við upplýsinga- og viðvörunarskilti er þó í bígerð að sögn Sveins Pálssonar sveitastjóra. Hann vill þó engin loforð gefa um hvenær aðvörunarskilti komi upp í fjörunni.

Ferðamenn voru hætt komnir í Reynisfjöru síðastliðinn föstudag þegar þeir óðu út í sjó til að reyna að bjarga hval sem hafði rekið á land.

„Það á eftir að útfæra framkvæmdina að þessu og tala við landeigendur," segir Sveinn. „ Sveitafélagið sem og aðilar úr ferðageiranum, ferðamálastofa og slysavarnarfélagið hafa lýst sig viljuga til þess að taka á málinu í sameiningu."

Sveinn segir framkvæmdina flóknari en við fyrstu sýn „ Það þarf að ákveða hvað standi á skiltinu og hvar það eigi að vera. Við viljum ekki bara setja upp varnarskilti heldur er verið að vinna með þá hugmynd að setja upp almennt upplýsingaskilti um náttúrufar á svæðinu og á því verður svo aðvörun," segir Sveinn en nú eru engin upplýsingaskilti að finna við Reynisfjöru.

Samkvæmt upplýsingum frá Sveini eru landeigendur að Reynisfjöru fjölmargir jafnvel þótt ekki sé um stórt svæði að ræða. Ekki er hægt að setja upp skilti án þeirra samþykkis en verið er að undirbúa fund með þeim. „Það er ekki þannig að ég geti keyrt út í sveit og sest inn í eldhús hjá þeim og leyst málin heldur er um marga aðila að ræða sem þarf að funda með," segir Sveinn.

Sveinn segir Reynisfjöru vera vinsælan ferðamannastað og vindsældir fjörunnar hafi aukist í samræmi við aukinn ferðamannastraum til landsins. Ferðamenn leggja leið sína þangað allan ársins hring þó mesta umferðin sé á sumrin. „ Þetta er í kortinu hjá útlendingum, þeir hafa ströndina í hávegum. Vegurinn í Reynisfjöru er einnig greiður og betri en til dæmis út í Dyrhóley sem er einnig vinsæll ferðamannastaður."

Oftast er um erlenda ferðamenn að ræða sem gera sér ekki grein fyrir hættunni í Reynisfjöru að sögn Sveins. Hann bendir á að aðstæður séu mjög misjafnar þar, vegna breytileika fjörunnar sé mishættulegt að vera þar.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×