Bíó og sjónvarp

Það ferskasta í boði á RIFF

Kolbrún Björt Sigfúsdóttir skrifar
Kelin eftir Emrek Tursunov frá Kasakstan er meðal mynda sem taka þátt.
Kelin eftir Emrek Tursunov frá Kasakstan er meðal mynda sem taka þátt.
Keppnismyndir Vitrana, aðalkeppnisflokks Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, hafa verið kynntar. Gildar til keppni eru fyrstu eða aðrar myndir leikstjóra í fullri lengd og hlýtur sigurvegarinn titilinn Uppgötvun ársins og gripinn Gyllta lundann. „Það ferskasta í alþjóðlegri kvikmyndagerð“ segir í tilkynningu frá hátíðinni.

Myndirnar sem keppa eru Kelin eftir Emrek Tursunov frá Kasakstan, Hamingjusamasta stúlka í heimi eftir Radu Jude frá Rúmeníu, Dagdrykkja eftir Noh Young-seok frá Suður-Kóreu, Betra líf eftir Duane Hopkins frá Bretlandi, Garðastræti eftr Enrique Rivero frá Mexíkó, Vinnukona eftir Sebastian Silva frá Chile, Ramirez eftir Albert Arizza frá Spáni, Earmon eftir Margaret Corkery frá Írlandi, Dauðadá eftir Ludwig Wüst og La Pivellina eftir Reiner Primmel og Tizzu Covi frá Austur­ríki.

Eru þær allt frá dæmisögum um Forn-Tyrki til daglegs líf í enskum sveitabæ og sirkusstarfsmanns sem finnur tveggja ára stúlku.

Alþjóðleg kvikmyndahátíð hefst 17. september og verða yfir hundrað myndir til sýnis á tíu dögum. Aldrei hefur verið staðið að fleiri sýningum eða hliðarviðburðum á hátíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×