Skoðun

Sýndarmennska um sáttanefnd?

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Það sem Íslendingar þurfa er sterkara atvinnulíf. Óvissa og óljós framtíð í helstu atvinnugreinum landsins er óþolandi. Það er alið á tortryggni og andúð á ákveðnum stéttum fólks. Niðurstaðan er kyrrstaða í íslensku atvinnulífi.

Atvinnulífið í landinu líður fyrir sundrungu í ríkisstjórninni. Ég vil ekki vera neikvæð, neikvæðni er vont veganesti. En atvinnulífið þolir ekki lengri stöðnun.

Sjávarútvegurinn hefur of lengi verið bitbein í samfélaginu. Flestir gera sér fullvel grein fyrir mikilvægi og nauðsyn þess að ná sátt til langframa um þessa atvinnugrein. Niðurstaða meirihluta svonefndrar sáttanefndar um sjávarútvegsmál á dögunum liggur fyrir. Mælt var með samningaleiðinni og að byggja skuli á ríkjandi fiskveiðistjórnunarkerfi; kerfi sem hefur aukið verðmæti íslenskra sjávarafurða og leitt til þess að íslenskur sjávarútvegur, er fyrirmynd annarra landa.

En hvað gerir ríkisstjórnin? Í stað þess að grípa augljóst tækifæri og fara að tillögum sáttanefndarinnar, dregur ríkisstjórnin enn lappirnar. Hvers vegna? Var kannski niðurstaðan henni ekki að skapi? Var sáttanefndin bara sýndarmennska?

Óvissan hefur gert það að verkum, að næstum engin fjárfesting eða framkvæmdir eru innan atvinnugreinarinnar. Allir halda að sér höndum, sem hefur í för með sér minni atvinnu, meðal annars fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem veita greininni þjónustu.

Þegar núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi var sett á laggirnar var það umdeilt og erfitt fyrir margra hluta sakir. Menn greindi á um aðferðir við að skipta takmarkaðri auðlind. Þeir sem lengi höfðu stundað útgerð gátu ekki lengur fiskað að vild. Það kallaði á mikla og sársaukafulla hagræðingu innan greinarinnar sem margir virðast hafa gleymt.

Það kann að vera að hægt sé að gagnrýna hvernig þáverandi stjórnvöld stóðu að breytingunum, en þær voru nauðsynlegar. Fiskistofnarnir voru á niðurleið, sumir segja að hruni komnir. Það þurfti að taka ákvörðun um framtíð fiskveiða. Það varð að takmarka veiðarnar. Það var gert þrátt fyrir pólitískar óvinsældir. Þá höfðu menn í huga að tryggja viðgang, verndun og hagkvæma nýtingu fiskistofnanna.

Málið er ekkert flóknara nú. Mikilvægast er fyrir heimilin og samfélagið allt að koma atvinnulífinu af stað aftur. Hvað sjávarútveginn varðar er málið einfalt. Tillögurnar liggja fyrir. Það þarf ákvarðanir. Það þarf ríkisstjórn, sem þorir.




Skoðun

Sjá meira


×