Lífið

Í hot-jóga kennaranám til Taílands

Gyða Pétursdóttir flytur til Taílands þar sem hún mun leggja stund á nám í hot-jóga.
Gyða Pétursdóttir flytur til Taílands þar sem hún mun leggja stund á nám í hot-jóga.

Gyða Pétursdóttir flytur til Taílands í byrjun október þar sem hún hyggst læra til jógakennara. Gyða mun dvelja ásamt öðrum nemendum á paradísareyjunni Koh Samui og stunda þar hot-jóga, hugleiðslu og læra kennslutækni.

„Ég er búin að stunda hot-jóga hjá Jóhönnu í Sporthúsinu síðan í febrúar og féll alveg fyrir íþróttinni. Ég fór svo að skoða skóla á netinu og fann einn í Bandaríkjunum og annan í Taílandi. Ég ræddi þetta svo við Jóhönnu og komst þá að því að hún hafði sjálf lært í skólanum í Taílandi. Hún var hæstánægð með námið og það var meðal annars ástæðan fyrir því að ég ákvað að fara þangað,“ útskýrir Gyða sem dagsdaglega starfar hjá markaðsdeild Brimborgar.

Námskeiðið stendur yfir í mánuð og er kennt á hverjum degi frá klukkan hálf sjö um morguninn og fram á kvöld. „Við stundum jóga tvisvar á dag og þess á milli lærum við sögu íþróttarinnar, anatómíu mannsins, hugleiðslu og almenna kennslutækni,“ segir Gyða og bætir við: „Ég veit að þetta er erfitt nám og hlakka til að sjá hvernig líkaminn bregst við svona stífri þjálfun.“

Gyða segir að hana hafi lengi langað að kenna íþróttir meðfram skrifstofuvinnunni og segist jafnvel geta hugsað sér að snúa sér alfarið að jógakennslu í framtíðinni. Gyða hlakkar mikið til ferðarinnar og er þegar farin að telja niður dagana. „Ég er löngu byrjuð að telja niður dagana. Ég er ekki bara að fara út í skemmtilegt nám og upplifa eitthvað nýtt heldur fæ ég að sameina bæði nám og ferðalag í einn og sama pakkann. Svo er skólinn auðvitað á mikilli paradísareyju sem skemmir ekki fyrir,“ segir hún að lokum. - sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×