Lífið

Þessi er dúndur eftir ræktina (heilsudjús)

Solla veit hvað hún syngur í hollustunni.
Meðfylgjandi myndir af leikkonunni Scarlett Johansson, 26 ára, með grænleitan drykk í hendi yfirgefa líkamsræktina, voru birtar á Lífinu í gær þar sem spurt var hvaða ógeðsdrykk leikkonan neytti.

Solla Eiríks, eigandi veitingahússins Gló, skoðaði myndirnar af Scarlett og gaf okkur uppskrift af ljúffengum hollustudrykk sem lítur eins út og umræddur drykkur leikkonunnar.

Grænn ofursjeik

250 ml kókosvatn

50g spínat

¼ lime eða sítróna, afhýdd

2 cm biti fersk engiferrót

½ tsk grænt duft

½ tsk bee pollen

½ - 1 avókadó, afhýtt

½ dl möndlur eða kasjúhnetur

1 msk lucuma- þurrkaður ofurávöxtur sem fæst í heilsubúðum (má sleppa)

Setjið allt í blandara og blandið vel saman. Þessi er fullkomin máltíð eftir ræktina, segir Solla.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×