Lífið

Purity Herbs í Kína

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar framleiðslufyrirtækið Purity Herbs fagnaði í nýju húsnæði við Freyjunes 4 á Akureyri.

Eigendur Purity Herbs fögnuðu nýjum áfanga í sögu fyrirtækisins sem er komið með framtíðaraðstöðu þar sem allar aðstæður eru eins og best verður á kosið og mögulegt að taka á móti viðskiptavinum, ekki síst erlendum dreifingaraðilum sem ætla sér stóra hluti með Purity Herbs í sínu heimalandi.

Hitt gleðitilefnið var stór samningur um útflutning til Kína þar sem barnalína Purity Herbs er komin á markað þar í landi. Um er að ræða þrjár vörutegundir, barnakrem, barnaolía og barnasápa og allt 100% náttúrulegt.

Á annað hundrað manns mættu til að samgleðjast og skoða nýja húsnæð Purity Herbs og allir voru sammála um að vel hafi tekist til með allar framkvæmdir og staðsetningin einstök með fögru útsýni hvert sem litið er.

Sleipiefni Purity Herbs eru vinsæl á meðal sjómanna á Íslandi (video).

Purity Herbs á Facebook.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×