Innlent

Líkir kvótafrumvarpinu við Tyrkjaránið og Heimaeyjargosið

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Elliði Vignisson er bæjarstjóri í Vestmanneyjum.
Elliði Vignisson er bæjarstjóri í Vestmanneyjum.

Verði frumvarp um breytingar á fiskveiðistjórnunarlögum, sem nú liggur fyrir Alþingi, samþykkt mun það leiða til mikillar fólksfækkunar í Vestmannaeyjum. Þetta kemur fram í umsögn bæjarráðs Vestmannaeyjar um frumvarpið.

Í umsögninni kemur fram að samkvæmt frumvarpinu muni aflaheimildir í Vestmanneyjum skerðast um níu þúsund þorskígildistonn á næstu fimmtán árum eða um 15 prósent. Bæjarráð telur ólíklegt að útgerðarfyrirtækin endurleigi tapaðar heimildir úr fyrirhuguðum leigupottum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra enda sé fjárhagslegur ábati vandséður í þeim viðskiptum.

Að mati bæjarráðs munu um 100 manns, sem starfa við veiðar og vinnslu, missa vinnuna og með afleiddum störfum má gera ráð fyrir að um tvö hundruð störf tapist. Forsendur á annað hundrað fjölskyldna fyrir búsetu í Eyjum bresta eins og rökstutt er í álitinu. Ekki verður séð að aðrir viðburðir í sögu byggðar í Vestmannaeyjum muni hafa áður haft viðlík áhrif á samfélag Eyjamanna nema ef til vill eldgosið 1973 og Tyrkjaránið 1627.

Þá segir bæjarráð Vestmannaeyjabæjar að tekjutap bæjarsjóðs verður hinsvegar mikið, jafnvel þótt eingöngu sé litið til útsvarsgreiðslna. Útsvarsgreiðslur muni lækka um 160 milljónir sem sé meira en rekstur allrar félagsþjónustunnar í sveitarfélaginu kosti á ársgrundvelli.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×