Lífið

Átök innan tískubransans

Sara McMahon skrifar
Fagstjórinn Linda Björg Árnadóttir, fagstjóri fatahönnunardeildar LHÍ, segir menn greina á um hvernig koma eigi íslenskri fatahönnun á framfæri.
Fagstjórinn Linda Björg Árnadóttir, fagstjóri fatahönnunardeildar LHÍ, segir menn greina á um hvernig koma eigi íslenskri fatahönnun á framfæri. fréttablaðið/vilhelm
Linda Björg Árnadóttir segir að nám í fatahönnun sé fyrst og fremst listnám, ekki nám í vöruhönnun. Hún segir að fólk innan tískubransans sé ósammála um hvernig eigi að koma íslenskri fatahönnun á framfæri.

Útskriftarsýning fatahönnunardeildar Listaháskóla Íslands fer fram í Hafnarhúsinu á skírdag og munu tveir erlendir prófdómarar dæma lokaverkefni nemenda. Dómararnir eru Emily Harris sem starfar hjá Sonia Rykiel og hin danska Rikke Ruhwald sem hefur meðal annars unnið hjá Rykiel og Lacroix.

Linda Björg Árnadóttir, fagstjóri fatahönnunardeildar, telur mikilvægt að fá hingað hlutlausa aðila til að meta starfið sem fram fer við skólann.

„Líkt og hjá öðrum hönnunarskólum er námið hjá okkur listnám og við erum að þjálfa fólk til að vinna á svokölluðu efsta stigi „prêt-à-porter" hönnunar. Árlega fáum við til okkar gestadómara, sem allir eru starfandi hjá bestu hönnunarhúsunum, til að dæma útskriftarverkefnin," segir Linda Björg og bætir við að árgangurinn í ár sé sérstaklega sterkur.

Að hennar sögn er áberandi ágreiningur manna á milli innan íslenska tískubransans og fólk ósammála um hvernig eigi að koma íslenskri fatahönnun á framfæri. Því sé gott að fá hingað hlutlausa aðila til að dæma prófverkefni nemenda.

„Ég hef meðal annars heyrt að nemendur okkar séu að hanna svo frumleg föt að það sé ekki hægt að ganga í þeim. Það fólk hefur greinilega litla þekkingu á fatahönnunarnámi því það er fyrst og fremst listnám og ekki nám í vöruframleiðslu. Þá þekkingu fá krakkarnir bæði í starfsnámi og starfi. Hér heima er mikið um að fólk hanni fatnað í „massaframleiðslu-gæðum" en kynni hana sem „prêt-à-porter", líkt og sumt af því sem sýnt var á RFF. Það má alls ekki rugla þessum tveimur mörkuðum saman, hönnun í „massaframleiðslu- gæðum" á að kynna á öðrum stöðum og á annan hátt," útskýrir Linda Björg.

Útskriftarsýningin fer fram klukkan 20.00 í Listasafni Reykjavíkur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×