Innlent

Vara Lýsis um allan heim

Oil4Life vörurnar fást í völdum heilsubúðum og apótekum á Íslandi.
Oil4Life vörurnar fást í völdum heilsubúðum og apótekum á Íslandi. Fréttablaðið/GVA
Norska fyrirtækið Oil4Life sem selur lýsisafurðir um allan heim hefur gert samning við Lýsi hf. um framleiðslu á vöru fyrir fyrirtækið. „Við völdum Lýsi vegna gæðaframleiðslu þeirra. Við erum mjög ánægðir með þá," segir Ola Eide, framkvæmda- og rannsóknarstjóri Oil4Life. „Lýsi er að mínu mati líklega besti framleiðandi á lýsisvörum, gæðalega séð."

Adolf Ólason, markaðsstjóri Lýsis, segir að samvinnan sé á byrjunarstigi og gangi mjög vel. „Við erum að blanda vöru fyrir Oil4Life sem mun verða seld út um allan heim," segir Adolf og bætir við að lítil skref séu tekin í byrjun. „Þetta er jákvætt að öllu leyti. Við erum að berjast fyrir auknum útflutningi."

Varan sem Lýsi framleiðir fyrir Oil4Life er blanda af ólívuolíu og íslensku lýsi. „Ástæðan fyrir notkun ólívuolíu með lýsinu er til að verja lýsið fyrir þráa sem oft vill verða. Þetta virkar líka innan líkamans og kemur í veg fyrir oxun omega 3 fitusýra. Við fáum góðu áhrif omega 3 fitusýranna en höldum neikvæðu áhrifunum í burtu," segir Eide og bætir við að varan sé nokkurs konar næsta kynslóð omega 3 vara.

Að sögn Eide hefur fyrirtækið einnig þróað lýsi í duftformi sem hugsað er fyrir fólk sem finnst lýsisbragð vont. „Sumum finnst lýsi í fljótandi formi gott og það er allt í lagi. Öðrum finnst það ekki og taka þess í stað lýsishylki," útskýrir Eide. „Þess vegna þróuðum við lýsi í duftformi sem hægt verður að bæta við mat."

Oil4Life á í viðræðum við Matís um að prófa lýsi í duftformi í mismunandi mat. „Við ætlum að kanna virkni vörunnar. Við vitum að hún inniheldur jafnmikið af Omega 3 og lýsi í vökvaformi. Við vitum líka að líkaminn tekur það upp. Núna langar okkur að kanna framleiðslumöguleika," upplýsir Eide sem segir næstu skref verða að ræða við Lýsi um framleiðslu vörunnar.

martaf@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×