Samstarf

Uppruni og saga framrúðunnar

Henry Ford lét framleiða sérstaka gerð framrúða í bíla til að draga úr slysum.
Henry Ford lét framleiða sérstaka gerð framrúða í bíla til að draga úr slysum.
Fáum kemur líklega á óvart að framrúðan var upphaflega fundin upp til þess að koma í veg fyrir blástur framan í bílstjórann. En á sínum tíma, í byrjun 20. aldar þegar „hestlausir vagnar" keyrðu um götur, þurfti að finna eitthvað upp til að halda smásteinum, flugum og ryki frá augum bílstjórans sem varð meira vandamál eftir því sem hraði farartækjanna jókst. Fyrstu framrúðurnar áttu það til að brotna og skaða ökumenn og farþega illilega. Bílaframleiðandinn Henry Ford ákvað að stemma stigu við því með því að láta framleiða í bíla tvöfalt gler sem var límt saman með sellúlósa. Í Evrópu notuðust menn hins vegar aðallega við hert gler allt fram á 8. áratuginn. Það þoldi mikið álag en átti það til að brotna í þúsund litla mola.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×