Samstarf

Borgar sig að gera við

@Concept_myndatextar:„Við borum fyrst í stjörnuna, sprautum sérstökum efnum í sárið sem eru hert í útfjólubláu ljósi þannig að skemmdin hverfur,“ segir Smári um rúðuviðgerðirnar í Betra pústi.
@Concept_ljósmyndari:Mynd/Anton
@Concept_myndatextar:„Við borum fyrst í stjörnuna, sprautum sérstökum efnum í sárið sem eru hert í útfjólubláu ljósi þannig að skemmdin hverfur,“ segir Smári um rúðuviðgerðirnar í Betra pústi. @Concept_ljósmyndari:Mynd/Anton
asd
„Ef stjarna kemur í framrúðuna eftir steinkast borgar sig fyrir bíleigandann að láta gera við rúðuna í stað þess að skipta um gler,“ Þetta segir Smári Óskar Hólmarsson, framkvæmdastjóri í Betra pústi við Skógarhlíð í Reykjavík. „Viðgerð á rúðu er bíleigandanum að kostnaðarlausu því tryggingafélögin borga hana en sé hins vegar skipt um rúðu þarf bíleigandinn að borga 15% af heildarupphæðinni í sjálfsábyrgð,“ segir Smári og bendir á að framrúður séu dýrar, enda margt í þeim í dag sem hleypi upp verðinu. „Ef skipta þarf um framrúðu í rútu þá getur sú rúða kostað hálfa milljón og þær dýrustu eru upp á eina og hálfa,“ segir hann. „Ein rúta sem við fengum til okkar fékk stein í rúðuna í fyrstu ferðinni sinni. Okkur tókst að gera við hana og sú viðgerð hefur haldið vel.“

Smári mælir með því að fólk hafi rúðuplástur við höndina en hann má fá hjá tryggingafélögum. „Ef steinn kemur í rúðuna er best að skella plástri á sárið til að ekki fari óhreinindi í það og láta svo gera við rúðuna sem fyrst,“ ráðleggur hann. „Um leið og farið er að trassa viðgerð er hætta á að sprungur teygi sig víðar og þá verður að skipta,“ bætir hann við.

Smári segir starfsmenn Betra pústs fást við ísetningar á bílrúðum þegar með þarf og jafnan vanda til verka. „Frágangur á rúðum skiptir öllu máli. Rétt efni verða líka að vera notuð því annars getur farið að ryðga meðfram rúðunni eftir ár og það er tjón fyrir bíleigandann. Rúðurnar verða að vera pottþéttar. Þar dugar ekkert fúsk.“

adf




Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×