Samstarf

Gróska í Forsælu

Hlín Gunnarsdóttir segir námslínuna Rekstur, stjórnun og markaðssetning smáfyrirtækja –markviss leið, hafa opnað fyrir sér nýjar víddir og aukið skilning.
Hlín Gunnarsdóttir segir námslínuna Rekstur, stjórnun og markaðssetning smáfyrirtækja –markviss leið, hafa opnað fyrir sér nýjar víddir og aukið skilning. Mynd/hag
Hlín Gunnarsdóttir sótti námskeiðslínuna Rekstur, stjórnun og markaðssetning smáfyrirtækja – markviss leið, og sér ekki eftir því.

„Ég er menntaður leikmynda- og búningahönnuður og starfaði við það um árabil, jafnframt leiðsögn við ferðamenn heima og erlendis. Á einhverjum tímapunkti fæddist draumurinn um að bjóða upp á gistingu í heimilislegu umhverfi gömlu húsanna við Grettisgötu, þar sem ég bý. Ég hafði enga þekkingu á viðskiptum og skráði mig því á námskeið fyrir konur í Stofnun og rekstur smærri fyrirtækja hjá Brautargengi. Forsæla Apartmenthouse tók svo á móti fyrstu gestunum árið 2003. Eftir sjö ára starfsemi fannst mér þörf á einhvers konar örvun og næringu fyrir reksturinn. Þá rakst ég á þessa spennandi námskeiðslínu hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Námið var vel uppbyggt og kennararnir mjög góðir, jafnvel reikningsskil og skattamál urðu skemmtileg," segir hún og hlær.

Hlín segir að námið hafi virkilega opnað nýjar víddir og aukið skilning. „Markaðssetning og aukin þekking á heimasíðugerð kemur að góðum notum. Möguleikar Fésbókarinnar voru opinberun og margt fleira var í pakkanum, gert til þess að hjálpa manni af stað eða styrkja í rekstri eigin fyrirtækis."


Tengdar fréttir

Tvær hagnýtar námskeiðslínur á sviði reksturs og þjónustu

Endurmenntun Íslands býður upp á tvær spennandi og hagnýtar námskeiðslínur. Þessar línur sem við bjóðum nú eru: Rekstur, stjórnun og markaðssetning smáfyrirtækja – markviss leið, sem er 90 klukkustunda nám, og Lykilþættir þjónustu – markviss leið, sem er 50 klukkustunda nám," segir Erna Guðrún Agnarsdóttir, námsstjóri Endurmenntunar Háskóla Íslands.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×