Samstarf

Metnaður skilar árangri

Aðalbjörg Einarsdóttir, naglafræðingur og skólastjóri Naglaskóla Professionails.
Aðalbjörg Einarsdóttir, naglafræðingur og skólastjóri Naglaskóla Professionails. Mynd/GVA
Naglaskóli Professionails er alþjóðlegur skóli sem er starfræktur í húsnæði Snyrtiakademíunnar að Hjallabrekku 1 í Kópavogi.

„Hér er metnaður í hávegum hafður. Nemendur læra í raun um allt sem við kemur nöglum, ásetningu gervinagla, umhirðu nagla og naglasjúkdóma auk þess sem áhersla er lögð á verndun náttúrulegra nagla, það er lykilatriði," segir Aðalbjörg Einarsdóttir, naglafræðingur og skólastjóri Naglaskóla Professionails, að Hjallabrekku 1 í Kópavogi.

Naglaskólinn hefur verið starfræktur frá árinu 1998 og útskrifað hundruð naglafræðinga síðan þá. „Þetta er diplómanám sem er kennt á miðvikudögum allt árið um kring," útskýrir Aðalbjörg og getur þess að í raun sé svolítið undir hverjum og einum komið hversu langan tíma námið taki. „Það fer bara meðal annars eftir því hvað fólk er duglegt að æfa sig heima."

Skólinn sækir heiti sitt til Profsessionails sem er belgískt vörumerki. „Það er virt um allan heim og fyrir löngu búið að sanna sig, enda spannar saga þess 30 ár," bendir Aðalbjörg á og bætir við að útskrifaðir naglafræðingar frá skólanum á Íslandi hafi sjálfkrafa aukna möguleika á ráðningu hjá stofum sem starfa undir merkjum þess. „Og þær eru um nánast alla heim."

Engin inntökuskilyrði eru í Naglaskólann önnur en sextán ára lágmarksaldur og hafsjór af þolinmæði að sögn Aðalbjargar. „Listrænir hæfileikar eru aukaatriði, hér skiptir fyrst og fremst máli að vera þolinmóður, nákvæmur og með gott auga."

Aðalbjörg getur þess að ýmsir skipulagðir viðburðir séu síðan á vegum skólans. Fyrr á árinu stóðu forsvarsmenn hans til að mynda fyrir Íslandsmeistaramóti í naglaásetningu og fantasíu sem var endurvakin eftir hlé. „Og það er svolítið skemmtilegt að segja frá því að í fyrsta skipti þegar keppnin var haldin fór sigurvegarinn til alþjóðlegrar keppni í London. Það er því alveg óhætt að segja að hér sé fullt af spennandi hlutum að gerast," segir hún glaðbeitt.

Allar nánari upplýsingar í síma 588 8300 og á Facebook.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×