Samstarf

Grunnstoðir - fyrir nemendur með lestrarerfiðleika

Anney segir að námsleiðirnar Aftur í nám og Grunnmenntaskólinn hafi verið vinsælar hvor í sínu lagi.
Anney segir að námsleiðirnar Aftur í nám og Grunnmenntaskólinn hafi verið vinsælar hvor í sínu lagi.
Mímir símenntun býður upp á námsleiðina Grunnstoðir fyrir fólk sem ekki er með formlega grunnmenntun og stríðir við lestrarerfiðleika.

Grunnstoðir verða nú kenndar í fyrsta skipti hjá Mími að sögn Anneyjar Þ. Þorvaldsdóttur, verkefnastjóra hjá Mími símenntun. „Grunnstoðir er námsleið sem samanstendur af tveimur öðrum námsleiðum sem steypt hefur verið saman í eina, það er Aftur í nám og Grunnmenntaskólann," segir Anney hjá Mími símenntun. Með samþættingunni fæst tækifæri til þess að bæta við þjálfun í notkun gagnlegra tölvuforrita, til dæmis Easy Tutor. Auk þess mun sami náms- og starfsráðgjafinn fylgja hópnum eftir og styðja frá upphafi til loka.

Anney segir að nemendur fái einkatíma í lesblinduleiðréttingu hjá Davis-ráðgjafa. „Í framhaldinu hafa nemendurnir verið þjálfaðir í notkun aðferðarinnar við íslensku- og tölvunám," upplýsir Anney. „Í Grunnmenntaskóla er kennd íslenska, stærðfræði, enska og tölvur en einnig sjálfstyrking, námstækni, framsögn og ræðumennska. Þetta hefur ekki verið sérstaklega í boði fyrir lesblinda áður en við ákváðum að laga Grunnmenntaskólann að þeim hópi," segir Anney og bætir við að lesblindir nemendur geti með þessari nýjung spreytt sig í fjölbreyttari námsgreinum.

Innt eftir því af hverju ákveðið hafi verið að fara af stað með Grunnstoðir segir Anney: „Það hefur komið fyrir að fólk með lesblindu sem kemur beint inn í Grunnmenntaskólann á erfitt uppdráttar og fer þá í Aftur í nám. Það er ekki alveg rétta röðin. Þarna fær það grunninn og getur svo haldið áfram og klárað Grunnmenntaskólann."

Anney segir að margir þeirra sem farið hafa í Aftur í nám hafi verið með brotna skólagöngu að baki. „Margir hafa ekki farið í framhaldsskóla eða eru með slæma reynslu af námi," útskýrir Anney og tekur fram að Grunnstoðir snúist mikið til um að byggja upp jákvætt viðhorf gagnvart námi. „Þetta snýst um að byggja einstaklinginn upp. Nám getur verið skemmtilegt og allir geta stundað nám."

Aðspurð segir Anney að kennt verði alla morgna, frá mánudegi til föstudags. Grunnstoðir hefjast 30. september og standa fram í desember. Skráning stendur yfir.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×