Samstarf

Mikil aðsókn í Förðunarskólann

„Mikil aðsókn er í haustönnina,“ segir Svanhvít Valgeirsdóttir, skólastjóri Förðunarskóla Snyrtiakademíunnar.
„Mikil aðsókn er í haustönnina,“ segir Svanhvít Valgeirsdóttir, skólastjóri Förðunarskóla Snyrtiakademíunnar. Mynd/GVA
Skráning stendur nú yfir á haustönn Förðunarskóla Snyrtiakademíunnar. Mikil aðsókn er í námið sem stendur í fjórtán vikur en að þeim loknum eru nemendur útskrifaðir sem förðunarfræðingar.

Við förum yfir allt sem snertir förðun en þetta er mjög fjölbreyttur bransi,“segir Svanhvít Valgeirsdóttir, skólastjóri Förðunarskóla Snyrtiakademíunnar, en haustönnin í skólanum hefst 5. september. „Við förum vel yfir grunninn og kennum tímabilaförðun, airbrush, tísku-, ljósmynda-, sjónvarps- og leikhúsförðun svo fátt eitt sé nefnt,“ segir hún. Svanhvít segir nemendur einnig læra hvernig best sé að vinna með fólki í bransanum, leikstjórum og öðrum, enda hafi kennarar Förðunarskólans góða reynslu úr hinum raunverulega heimi.

Aðalkennarar skólans eru þrír, þær Svanhvít, Elsa Þuríður Þórisdóttir og Harpa Sjöfn Lárusdóttir. Sérsvið Svanhvítar er leikhús-, óperu- og líkamsförðun og hefur hún unnið við það bæði hérlendis og erlendis. „Við leggjum áherslu á að kennarar okkar hafi afar fjölbreytta reynslu,“segir Svanhvít. Hún fær þannig einnig til liðs við sig færa gestakennara. „Sá fyrsti verður Ólöf Benediktsdóttir sem vann sem stílisti hjá Lori Goldstein sem er aðalstílisti hjá japanska, kínverska og ítalska Vogue,“ upplýsir hún og lofar síðan skemmtilegum fyrirlestrum frá ýmsum þekktum aðilum.

Förðunarskólinn er sá elsti á landinu, hefur starfað í þrettán ár við góðan orðstír. Svanhvít segir gríðarlega aðsókn vera í námið nú í haust. „Nemendum fjölgaði mikið þegar við breyttum áherslum skólans og bættum við ýmsum sviðum fyrir utan tískuförðun,“ segir Svanhvít. Nemendur vinna að stóru þematengdu lokaverkefni alla önnina en þeir fá einnig raunveruleg verkefni. „Síðasta vetur tóku nemendur þátt í ýmsum verkefnum. Til dæmis förðuðu þeir fyrir söngleikinn Buddy Holly, Frostrósir, forvarnarauglýsingu, forsíðu Vikunnar, fyrir erlenda hárgreiðslumeistara frá L"Oréal og ýmislegt annað,“ telur hún upp.

Námið tekur fjórtán vikur, nemendum er skipt í tvo hópa, morgunhóp og kvöldhóp, sem hentar vel þeim sem eru í vinnu. Að lokinni önninni eru nemendur útskrifaðir sem förðunarfræðingar.

Kennsla Förðunarskóla Snyrtiakademíunnar fer fram að Hjallabrekku 1 í Kópavogi. Frekari upplýsingar um námið er að finna á vefsíðunni www.snyrtiakademian.is og á Facebook undir Förðunarskóli snyrtiakademíunnar. Þá má senda póst á skoli@snyrtiakademian.is eða hafa samband í síma 553 7900.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×