Samstarf

Toshiba-tölvur eru vinsælastar hjá ELKO

Hjörvar Freyr Hjörvarsson með Toshiba-tölvuna sem hann mælir með fyrir skólafólk.
Hjörvar Freyr Hjörvarsson með Toshiba-tölvuna sem hann mælir með fyrir skólafólk. Mynd/Stefán
ELKO er með mikið úrval af fartölvum, allt frá tíu tommu sem kosta 39.000 krónur upp í kraftmiklar vélar sem kosta allt að 300 til 500 þúsund. Hjörvar Freyr Hjörvarsson, vörustjóri tölvu- og símadeildar hjá ELKO, segist mæla með 13 tommu Toshiba vél fyrir skólafólk. „Hún er mjög nett og með DVD-drifi, ekki nema 1,4 kíló og batterísendingin er hátt í níu tímar svo hún endist vel daginn. Ef ég væri á leiðinni í skóla mundi ég taka þessa, ekki spurning,“ segir Hjörvar.

Hjörvar segir að ódýru tölvurnar dugi í öll venjuleg heimilisstörf tölvunnar eins og ritvinnslu, internet og önnur léttari forrit. En sé fólk að nota þung forrit þá endist tölvan betur sé hún öflug. Hann líkir endingu tölva við bíla, ef mikið álag er á litlum bíl þá er slitið meira en ef bíllinn er kraftmikill.

„Hjá okkur eru það Toshiba-tölvurnar sem eru vinsælastar. Það er líka góð reynsla af þeim, merkið er gott og endingin fín. Þær bila lítið og svo framvegis. En ef hún bilar þá er þjónustan hröð. Það tekur yfirleitt innan við viku að gera við þær,“ segir Hjörvar og tekur fram að ELKO sé í samstarfi við verkstæði sem sér um tölvurnar þeirra.

Tveggja ára ábyrgð er á öllum tölvum frá ELKO sem gildir um gjörvalla Evrópu. En að auki er boðið upp á tryggingar á vélarnar. „Ef þú verður fyrir óhappi þá færðu það bætt. Í þessum tryggingum er engin eigin ábyrgð og afföll og margir nýta sér þennan kost. Tryggingin tekur á víðu sviði, ef þú verður fyrir skyndilegu ófyrirséðu óhappi þá færðu það bætt. Þá er gert við vélina eða þú færð aðra sambærilega í staðinn,“ segir Hjörvar og telur þetta vera sérstaklega sniðugt fyrir þá sem vilja eiga eina vél í mörg ár. „Þá er gott að henda einni tryggingu á það, þá ertu nokkuð öruggur,“ segir Hjörvar.

Hjörvar segir að miklar framfarir hafi orðið á endingu battería undanfarið eitt og hálft ár. „Í dag eru þetta almennt fimm til sex tímar en voru fyrir stuttu þrír tímar. Það eru að koma nýir örgjörvar sem eyða miklu minna rafmagni og skjáir líka,“ útskýrir Hjörvar og bendir fólki á að það sé gott fyrir líftíma battería að taka þau úr tölvunum ef tölvan er mikið heima og alltaf í sambandi. „Þá ertu ekki að hlaða upp á nýtt og nýtt. Ef maður gerir það myndast ákveðin mótstaða í rafhlöðunni,“ segir Hjörvar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×