Samstarf

Bjóða fjölbreyttari tíma

Hafsteinn Daníelsson og Hilmar Gunnarsson blanda saman æfingum og búa til fjölbreyttari tíma í Veggsporti.
Hafsteinn Daníelsson og Hilmar Gunnarsson blanda saman æfingum og búa til fjölbreyttari tíma í Veggsporti. Mynd/GVA
„Cross Bells er ein af þeim nýjungum sem við bjóðum upp á núna en það er blanda af CrossFit og ketilbjöllum," segir Hafsteinn Daníelsson, annar eigenda Veggsports. Cross Bells-tímarnir verða kenndir í hádeginu og aftur seinnipartinn þriðjudaga og fimmtudaga og klukkan 10 á laugardögum.

„Ketilbjöllur eru upprunalega rússneskt æfingaform þar sem notaðar eru þungar bjöllur og allir stærstu vöðvar líkamans þjálfaðir samtímis, en CrossFit er alhliða hreyfing. Það er skemmtileg tilbreyting að blanda þessu saman," segir Hafsteinn, sem einnig hefur blandað styrktaræfingum inn í spinning-tímana í Veggsport til að auka fjölbreytni.

„Þetta eru mjög vinsælir tímar því þótt það sé gaman að hjóla er tilbreyting að hafa æfingar með. Hjólað er í fjörutíu mínútur áður en hópurinn færir sig inn í sal og gerir styrktaræfingar fyrir maga, rass, læri og bak og armbeygjur. Við blöndum þannig saman styrk og brennslu. Skvassið er þó alltaf vinsælast hjá okkur, en við erum stærstir í því.

Fólk kemur beint inn og spilar en við lánum fólki spaða og bolta. Skvass geta allir spilað, konur og karlar, unglingar og hjón," segir Hafsteinn og vill að lokum benda á heimasíðu stöðvarinnar, www.veggsport.is, þar sem nánari upplýsingar er að finna um tíma og æfingakerfi.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×