Sport

Gömul tennisstjarna: Pabbi og mamma eyddu öllum peningunum mínum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Arantxa Sanchez-Vicario fær hér koss frá foreldrum sínum eftir sigur á opna franska meistaramótinu.
Arantxa Sanchez-Vicario fær hér koss frá foreldrum sínum eftir sigur á opna franska meistaramótinu. Mynd/AFP
Arantxa Sanchez-Vicario var ein af þekktustu tennisstjörnum heimsins á tíunda áratugnum og vann þá meðal annars fjögur risamót. Hún vann sér þar með inn mikla peninga á ferlinum en það sem hún vissi ekki var að foreldrar hennar eyddu öllum peningunum jafnóðum.

Arantxa Sanchez-Vicario var upp á sitt besta á sama tíma og þær Steffi Graf og Monica Seles. Hún vann franska meistaramótið 1989, 1994 og 1998 og varð einnig meistari á opna bandaríska mótinu árinu 1994. Hún sat í efsta sæti á heimslistanum í október 1992.

Sanchez-Vicario, sem er fertug í dag, lagði tennisspaðann á hilluna árið 2002 eftir að hafa unnið sér inn yfir 60 milljónir dollara í verðlaunafé eða um 7,3 milljarða íslenskra króna. Þegar betur var að gáð kom í ljós að pabbi og mamma hennar höfðu eytt öllum peningunum og í stað þess að ganga að góðum sjóð inn á banka þá var hún í skuld hjá skattinum.

Sanchez-Vicario hefur greint frá þessu í nýrri bók. „Ég vissi ekki betur en að pabbi héldi vel utan um peningana mína og ávaxtaði þá á bestan mögulegan hátt," sagði Arantxa Sanchez-Vicario sem hefur slitið allt samband við foreldra sína.

„Ég átti ekkert lengur og skuldaði þess í stað skattinum. Hvernig gat það gerst að allt sem ég vann mér inn var gufað upp?," spyr Sanchez-Vicario í bókinni sinni.

Emilio, faðir hennar er nú 75 ára gamall en hann er hjartveikur, með krabbamein og Alzheimer samkvæmt móður hennar Marisu en foreldrarnir vilja annars ekkert tjá sig um ásakanir dóttur sinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×