Viðskipti innlent

Seðlabankinn hefur þrjár vikur til að upplýsa um ástæðu húsleitar

Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar
Mynd/Pjetur
Seðlabanki Íslands getur beðið í allt að þrjár vikur með að upplýsa um ástæðu húsleitar á skrifstofum Samherja í gær. Málið er nú í rannsókn.

Hátt í þrjátíu manns á vegum gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands, tollstjóra og embættis sérstaks saksóknara framkvæmdu mjög umfangsmiklar húsleitir í höfuðstöðvum Samherja í Reykjavík og á Akureyri í gær.

Stjórn Samherja hefur ekki fengið neinar upplýsingar um á hvaða grundvelli húsleitin var framkvæmd en samkvæmt lögum um meðferð sakamála hefur rannsóknaraðili allt að þrjár vikur til að veita sakborgningi aðgang að gögnum.

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja sagði í viðtali við Stöð tvö í gær að rannsóknin byggðist meðal annars á viðskiptum félagsins með karfa í gegnum dótturfélag Samherja í Þýskalandi. Sjónvarpsþátturinn Kastljós fjallaði um málið í gær og var því haldið fram að Samherji hafi á síðustu árum selt afla til erlends dótturfélags á mun lægra verði en gengur og gerist í almennum viðskiptum og þar með brotið gegn ákvæðum gjaldeyrislaga. Þorsteinn sagði hins vegar Seðlabankann hafa yfirfarið alla verkferla félagsins við sölu til útlanda og það hafi engin lög brotið.

Gjaldeyriseftirlit Seðlabankans fer með rannsókn málsins og hefur fengið aðstoð frá embætti sérstaks saksóknara. Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari vildi ekki tjá sig um málið við fréttastofu í dag og vísaði alfarið á Seðlabankann. Hjá Seðlabankanum fengust hins vegar þau svör að rannsókn á málinu væri hafin og verið væri að vinna úr þeim gögnum sem safnað var í gær. Enginn tímarammi hefur verið settur um rannsóknina en Stefán Jóhann Stefánsson ritstjóri Seðlabankans segir að farið verði að lögum og reglum. Þá vildi hann ekki gefa nein ítarlegri svör um ákvaða rökum húsleitarheimildin byggðist né hvort gripið verði til frekari aðgerða, svo sem yfirheyrslna vegna málsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×