Sport

Enn syrtir í álinn hjá sparkvissa tenniskappanum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/Getty
Ekki er ólíklegt að Argentínumaðurinn David Nalbandian hugsi sig tvisvar um næst þegar hann reiðist á tennisvellinum. Nalbandian sparkaði sem kunnugt er í auglýsingaskilti í úrslitaleik Aegon mótsins í London á sunnudag með þeim afleiðingum að línudómari meiddist á fæti.

Argentínumaðurinn var í gær sektaður um 10 þúsund dollara eða sem nemur um 1,6 milljónum íslenskra króna. Áður hafði Nalbandian orðið af sjö milljónum króna sem hann hefði fengið fyrir annað sætið í mótinum og 150 stig á heimslistanum.

Til að bæta gráu ofan á svart er málið í rannsókn hjá lögreglunni í Lundúnum vegna kvörtunar. Ekki er þó gefið upp hvaðan kvörtunin barst. Andrew McDougall, endalínudómarinn sem meiddist á fæti við atvikið skrautlega, var mættur aftur til vinnu í undankeppni Wimbledon mótsins.

Þá hefur Guardian eftir talsmanni ATP-mótaraðarinnar að atvikið og gagnrýni Nalbandian um skipulagningu ATP-mótanna yrðu tekin til rannsóknar. Þar gagnrýndi Nalbandian forsvarsmenn mótanna fyrir að láta keppni fara fram þrátt fyrir slæm skilyrði.

Argentínumaðurinn hefur þó dregið í land og beðist afsökunar á hátterni sínu.

„Ég ætlaði aldrei að hitta hann," sagði Nalbandian en blóð rann niður fótlegg McDougall þótt hann hafi ekki þurft aðhlynningu.

„Þetta voru slæm viðbrögð. Ég þurfti að pústa eftir að hafa tapað stiginu. Ég fékk tækifæri til þess að biðja línudómarann persónulega afsökunar fyrir atvikið sem ég sé sárlega eftir og ber fulla ábyrgð á."


Tengdar fréttir

Dæmdur úr leik fyrir að slasa dómara

Tenniskappinn David Nalbandian vill örugglega gleyma deginum í dag sem fyrst. Setti yfir í úrslitaleiknum á Queens-mótinu í Wimbledon í Englandi var honum vikið úr keppni fyrir að slasa línudómara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×