Innlent

Hrikalega stór lömb í Djúpinu

Kristján Már Unnarsson skrifar
Tveir lambhrútar, sem ær frá Skjaldfönn átti, reyndust hvor um sig vera 72 kíló að þyngd þegar þeir fóru í sláturhús í haust. Um 40% af heildarþyngd skepnunnar flokkast jafnan sem kjöt.

„Þetta hangir í að vera nærri 60 kíló af kjöti eftir tvílembu, sem mun vera að ég held örugglega Íslandsmet. Svona afurðir eftir tvílembu munu óþekktar," segir Indriði Aðalsteinsson bóndi, en um þetta var fjallað í þættinum „Um land allt".

Skjaldfönn í Ísafjarðardjúpi hefur undanfarin 30 ár verið eitt afurðamesta bú landsins, það er kjöt eftir hverja kind, ef ekki í efsta sæti á hverju ári, þá með fimm efstu. Afurðameira sauðfé finnst vart á landinu og streyma sauðfjárbændur til Indriða í hrönnum á haustin til að kaupa af honum líflömb. Kynbótalömb þaðan eru seld á hverju hausti til á annað hundrað bænda vítt um land og í haust bættust 20 bú við.

Þegar við spyrjum hver sé galdurinn nefnir hann framúrskarandi sauðfjárland í Djúpinu, stöðugar kynbætur en einnig þurfi stöðugt að hugsa vel um skepnurnar. Sauðkindin megi aldrei ganga úr holdum.

„Ég hef stundum verið gapandi hissa yfir þegar þær koma af fjalli á haustin, - svoleiðis steinhissa á því hvað í ósköpum þessir dilkar geta hlaðið á sig af kjöti á þessum örstutta sumartíma." Indriði segist ekki gefa neinn fóðurbæti og þær séu ekki settar á fóðurkál. Haglendið sé undirstaðan en allir aðrir þættir verði einnig að vera í lagi.


Tengdar fréttir

Amman ræktar epla- og appelsínutré við Drangajökul

Amman í Skjaldfannardal í Ísafjarðardjúpi, Ása Ketilsdóttir, vakti athygli í þættinum "Um land allt" á Stöð 2 í gærkvöldi þegar hún sýndi skrúðgarðinn sem hún er búinn að rækta upp á bæ sínum, Laugalandi, inn undir Drangajökli. Þar er hún með á þriðja hundrað tegunda, þeirra á meðal margar sem teljast suðrænar, eins og bóndarós, og það á svæði sem þekkt er fyrir kuldaleg örnefni; Kaldalón, Snæfjallaströnd og Skjaldfönn. "Það er líka til Unaðsdalur," bætti Ása við og minnti á nafn næsta dals norðan Kaldalóns.

Vinstri grænir að gera þjóðina fráhverfa umhverfismálum

Einn af stofnendum Vinstri grænna, Indriði Aðalsteinsson, bóndi á Skjaldfönn, segist vera búinn að fá nóg af ríkisstjórninni og ekki geta stutt flokkinn vegna svika í Evrópusambandsmálum. Þá hafi Vinstri grænir haldið þannig á umhverfisráðuneytinu að stór hluti þjóðarinnar sé að verða fráhverfur umhverfismálum. Þetta kom fram í þættinum Um land allt, sem er á dagskrá Stöðvar 2 að loknum fréttum á sunnudagskvöldum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×