Innlent

Gríðarleg skemmdarverk unnin á sveitabæ

Karen Kjartansdóttir skrifar
Gríðarleg skemmdarverk voru í nótt unnin á sveitabænum Sjávarhólum á Kjalarnesi auk þess sem skotið var á húsið. Lögreglan segir ítrekað hafa verið ráðist að bænum. Umsjónarkona hússins óttast að einnig hafi verið ráðist að hrossum sem þar voru í hagabeit.

Búið var að aka dráttarvél inn í húsið, brjóta flestar rúður í húsinu, rífa hurðina af bílskúrnum, skjóta með haglabyssu á húsið, skemma tæki og eyðileggja innanstokksmuni sem suma mátti sjá í innkeyrslunni við húsið.

Ekki er búið á bænum en Guðrún Sigurðardóttir hefur haft þar hross í hagabeit og lítur hún reglulega við til að sjá til þess að allt sé þar í lagi. Í gær hafi verið allt í lagi.

„Við komum hingað í gær og þá var allt í topplagi, allt í röð og reglu. Ég er með fullan bíl af hreinlætisgræjum til að fara skúra, þvo ískápinn og setja í hann. En þegar við komum hingað klukkan eitt voru aðstæður svona.“

Lögreglan segir ítrekað hafa verið ráðist að bænum.
Áverkar á skepnum

Guðrún og lögreglan segja að þótt langflest skemmdarverkanna hafi verið framin í nótt hafi ítrekað áður verið ráðist að bænum. Lögregla segir að þótt ekki sé vitað hver eða hverjir voru að verki sé talið að um sömu menn sé um að ræða.

„Það er ítrekað búið að skemma hérna, síðast var ráðist inn í bílskúrinn og rúðurnar á bílunum öllum boraðar. Það var eldgamall Pontiac sem stóð í horninu og ekki sá á en hann var gjörsamlega rústaður. Og svo er búið að skjóta á húsið úr haglabyssu og skemma klæðninguna.“

Hrossin sem Guðrún hefur fengið að hafa í hagabeit á jörðinni á sumrin eru nú á húsi. Óttast hún að skemmdarvargarnir hafi ráðist á skepnurnar sem voru í haga á jörðinni, til dæmis hafi reiðhesturinn hennar skyndilega helst og undarlegir áverkar komið í ljós á hófi hans.

„Við héldum fyrst að það hefði verið skotið á hann en sennilega hafa þeir borað í gegn.“

Búið var að mölbrjóta flestar rúður í húsinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×