Tíska og hönnun

Flott föt frá Isabel Marant fyrir H&M

Erna Hrund skrifar
Norska fyrirsætan Iselin Steiro er meðal þeirra sem sitja fyrir í herferðinni.
Norska fyrirsætan Iselin Steiro er meðal þeirra sem sitja fyrir í herferðinni.
Fyrstu myndir af fatalínu franska hönnuðarins Isabel Marant fyrir sænska verslanarisann H&M láku á netið í gær og hafa vakið mikla lukku meðal tískuáhugafólks.

"Eitt flottasta samstarf H&M við fatahönnuð," segir Erna Hrund Hermannsdóttir, bloggari á Trendnet.is sem sýnir sínar uppáhaldsflíkur úr samstarfinu á blogginu. 





"Það er mikið notagildi í hverri flík. Þær smellpassa inní H&M og hönnuðurinn hefir einmitt lagt áherslu á það að skapa gæðavöru sem allar konur geta notað. Þetta er mikið af stökum flíkum en ekki kjólum eins og svo oft áður," segir Erna Hrund.

Fallegir frakkar, buxur með munstrum og kögurprýdd stígvél er meðal þess sem má finna í fatalínunni. 

“I thought this was a good opportunity to say, ‘That belongs to me’,” sagði Isabel Marant í samtali við breska Vogue um samstarfið.  

Hönnuðinum fannst að þetta væri hennar tækifæri til að tryggja það að eftirlíkingarnar væru gerðar eftir hennar stöðlum.

Sjá fleiri myndir hér. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×