Tíska og hönnun

Upphá stígvél fyrir veturinn

Pattra Sriyanonge skrifar
Stígvélatrend vetrarins eru upphá leðurstígvél.
Stígvélatrend vetrarins eru upphá leðurstígvél. Vogue UK
Eitt af tískubólunum í ár eru leðurstígvél sem ná upp fyrir hnén og mátti sjá ýmsar útgáfur af skótrendinu á tískupöllunum í byrjun árs. 

Pattra Sriyanonge, bloggari á Trendnet.is er heilluð af þessu trendi og tók saman nokkrar myndir á blogginu sínu.

Rússkinnsstígvél með hæl við munstraða buxnadragt úr myndaþætti úr breska Vogue.

Fyrirsætan Miranda Kerr tók sig vel út í uppháum stígvélum.

"Nú má haustið koma því að þessi stígvél verða mínir bestu vinir, úr H&M Fall Collection’13. Mér finnst fallegt að klæðast svona uppháum stígvélum með berum leggjum ef það er gert rétt og smekklega, vitanlega," skrifar Pattra á bloggi sínu. 

Sjá meira hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×