Innlent

Reisa fjárhús og rækta skóg fyrir kindur að bíta

Kristján Már Unnarsson skrifar
Guðríður Baldvinsdóttir og Einar Ófeigur Björnsson í Lóni í Kelduhverfi ásamt Ásdísi, elsta barninu.
Guðríður Baldvinsdóttir og Einar Ófeigur Björnsson í Lóni í Kelduhverfi ásamt Ásdísi, elsta barninu. Mynd/Baldur Hrafnkell Jónsson, Stöð 2.
Á sveitabæ í Kelduhverfi í Norður-Þingeyjarsýslu reisir barnafjölskylda nú ný fjárhús. Þar er einnig verið að rækta skóg sem sérstaklega er ætlaður fyrir kindur. Þetta kemur fram í þættinum „Um land allt“ á Stöð 2 annaðkvöld, mánudagskvöld, en þar verður rætt við hjónin Einar Ófeig Björnsson og Guðríði Baldvindóttur. Brot úr þættinum var sýnt í fréttum Stöðvar 2.

Þau búa í Lóni ásamt þremur ungum börnum sínum, en þegar við sjáum iðnaðarmenn reisa þar ný 500 fermetra fjárhús er það fyrsta spurningin, í ljósi umræðu um stöðu sauðfjárbænda, hvort þau séu orðin galin:

„Jú, það getur alveg verið,” svarar Einar. „Samt er þetta ekki önnur umræða en var fyrir áratugum. Það er búið að tala um það lengi að sauðfjárrækt á Íslandi sé á vonarvöl og við erum nú lifandi enn.”

Einar segir flestum ljóst að efla þurfi matvælaframleiðslu í heiminum og vonast til að sauðfjárrækt á Íslandi verði hluti af því. Þau segjast ná fram hagræðingu og vinnusparnaði með nýjum fjárhúsum. Ný tækni með nýjum gjafagrindum leysi af gömlu garðana.

„Þetta er geysilega góð vinnuaðstaða hérna og þægindi. Ekki lengur gömlu góðu garðarnir sem þurfti að bera allt heyið í,” segir Guðríður.

Hún er skógfræðingur að mennt að það vekur athygli okkar að þau planta trjám fyrir kindurnar að bíta í framtíðinni. Hún er spurð hvort það séu ekki helgispjöll að beita skóginn. Í þættinum „Um land allt” annaðkvöld svarar hún því hvernig það geti farið saman að vera sauðfjárbóndi og skógfræðingur.

Í þættinum segir Guðríður einnig frá sápugerð „beint frá býli”, fjallað verður um mannlífið í Kelduhverfi og Öxarfjarðarskóli heimsóttur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×