Lífið

Fleiri myndir frá atriðunum á Super Bowl

Beyoncé kom, sá og sigraði í 15 mínútna löngu atriði sínu í hálfleik á Super Bowl.
Beyoncé kom, sá og sigraði í 15 mínútna löngu atriði sínu í hálfleik á Super Bowl.

Söngkonan Beyonce stóð við stóru orðin með stórbrotnu atriði í hálfleik á Super Bowl, úrslitaleiknum í NFL-deildinni og einum stærsta íþróttaviðburði vestanhafs.



Beyoncé flutti úrval laga sinna og allt ætlaði um koll að keyra þegar þær Kelly Rowland og Michelle Williams, sem eitt sinn mynduðu sveitina Destiny's Child ásamt Beyoncé, komu saman á nýjan leik í miðju atriðinu.



Það var svo söngkonan Alicia Keys sem söng þjóðsönginn og Jennifer Hudson kom einnig fram fyrir leikinn. Baltimore Ravens fóru með sigur af hólmi í leiknum.

Alicia Keys fékk þann heiður að flytja bandaríska þjóðsönginn fyrir leikinn.
Jennifer Hudson brosti út að eyrum er hún gekk inn á leikvanginn.
Barnakór skólans Sandy Hook í Newton söng fyrir leikinn ásamt söngkonunni Jennifer Hudson.
Hljómsveitin Destiny´s Child, sem Kelly Rowland, Michelle Williams og Beyoncé mynduðu, kom saman á ný.
Leik- og söngkonan Katherine McPhee lét sig ekki vanta og brosti þrátt fyrir að hennar lið tapaði.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×