Íslenski boltinn

31 mark skorað í Lengjubikarnum í gær

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ármann Smári fékk rautt í 4-4 jafntefli ÍA og Keflavíkur í gær.
Ármann Smári fékk rautt í 4-4 jafntefli ÍA og Keflavíkur í gær. Vísir/Anton
Það var mikið fjör í Lengjubikar karla í gær en alls fóru sjö leikir fram. Alls var 31 mark skorað í leikjunum.

ÍA og Keflavík gerðu jafntefli, 4-4, í dramatískum leik þar sem þrjú mörk voru skoruð á lokamínútum leiksins auk þess að Skagamaðurinn Ármann Smári Björnsson fékk að líta rauða spjaldið.

Eftir að Bojan Ljubicic hafði komið Keflavík yfir, 4-3, með tveimur mörkum með skömmu millibili náði Einar Logi Einarsson að bjarga stigi fyrir ÍA með marki á 94. mínútu.

Bæði lið eru með sjö stig á toppi 1. riðils ásamt Blikum sem unnu 4-3 sigur á Fram í öðrum markaleik.

Grindavík kemur svo næst með sex stig eftir að hafa lagt BÍ/Bolungarvík í gær. KR komst svo á blað með 2-1 sigri á Aftureldingu en liðið hafði tapað fyrir Fram í fyrsta leik sínum í keppninni.

Fjölnir og KA gerðu 1-1 jafntefli en þetta var fyrsta stig Akureyringa í keppninni eftir að hafa tapað fyrstu tveimur leikjunum. Fjölnir er nú með fjögur stig en Þór og FH eru með fullt hús stiga á toppnum að loknum tveimur leikjum.

ÍBV tapaði sínum fyrsta leik í 3. riðli er liðið mætti Víkingi frá Ólafsvík. Eyþór Helgi Birgisson tryggði Ólafsvíkingum sigur gegn hans gamla liði með marki á 89. mínútu. Þá unnu Selfyssingar sigur á Haukum, 3-2.

ÍBV og Selfoss eru bæði með sex stig í riðlinum, einu á eftir Víkingi Reykjavík. Stjarnan er með fimm stig og Ólafsvíkingar þrjú.

Einn leikur fer fram í dag en þá mætir Þór liði Þróttar í 2. riðli í Boganum á Akureyri.

Úrslit gærdagsins:

1. riðill:

ÍA - Keflavík 4-4

0-1 Daníel Gylfason (21.), 1-1 Garðar Gunnlaugsson (46.), 1-2 Hörður Sveinsson (53.), 2-2 Andri Adolphsson (56.), 3-2 Jón Vilhelm Ákason (58.), 3-3 Bojan Ljubicic, víti (90.), 3-4 Bojan Ljubicic (92.), 4-4 Einar Logi Einarsson (94.).

Breiðablik - Fram 4-3

0-1 Guðmundur Steinn Hafsteinsson (2.), 1-1 Finnur Orri Margeirsson (5.), 2-1 Tómas Óli Garðarsson (17.), 3-1 Tómas Óli Garðarsson (40.), 3-2 Aron Þórður Albertsson (45.), 4-2 Finnur Orri Margeirsson (79.), 4-3 Aron Þórður Albertsson (81.).

Grindavík - BÍ/Bolungarvík 2-1

1-0 Juraj Grijelj (15.), 1-1 Andri Rúnar Bjarnason (51.), 2-1 Ivan Jugovic (89.).

KR - Afturelding 2-1

1-0 Baldur Sigurðsson (16.), 1-1 Elvar Ingi Vignisson (65.), 2-1 Aron Bjarki Jósepsson, víti (90.).

2. riðill:

Fjölnir - KA 1-1

1-0 Ragnar Leósson (53.), 1-1 Ævar Ingi Jóhannesson (63.).

3. riðill:

Haukar - Selfoss 2-3

1-0 Hilmar Rafn Emilsson (12.), 1-1 Andri Már Hermannsson (16.), 1-2 Svavar Berg Jóhannsson (29.), 1-3 Andri Már Hermannsson (73.), 2-3 Hilmar Trausti Arnarsson (83.).

Víkingur Ó - ÍBV 2-1

0-1 Atli Fannar Jónsson (14.), 1-1 Steinar Már Ragnarsson (72.), 2-1 Eyþór Helgi Birgisson (89.).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×