Íslenski boltinn

Fylkir og Leiknir skildu jöfn í Lengjubikarnum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fylkis.
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fylkis. Vísir/Daníel
Pepsi-deildarlið Fylkis og Leiknir, sem leikur í 1. deild, skildu jöfn, 1-1, í riðli 2 í A-deild Lengjubikarsins í fótbolta í kvöld en leikið var í Egilshöll.

Ásgeir Örn Arnþórsson kom Fylki yfir á 15. mínútu leiksins en HilmarÁrniHalldórsson jafnaði metin með marki úr vítaspyrnu á 67. mínútu í seinni hálfleik.

Fylkir er í fjórða sæti riðilsins með átta stig eftir sex leiki, jafnmörg stig og Leiknir sem er sæti neðar. Bæði lið eiga eftir einn leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×